Sálmur 40
-1-
Til söngstjórans. Davíðssálmur.-2- Ég hefi sett alla von mína á Drottin, og hann
laut niður að mér og heyrði kvein mitt.-3- Hann dró mig upp úr glötunargröfinni,
upp úr hinni botnlausu leðju, og veitti mér fótfestu á kletti, gjörði mig styrkan
í gangi.-4- Hann lagði mér ný ljóð í munn, lofsöng um Guð vorn. Margir sjá það
og óttast og treysta Drottni.
-5- Sæll er sá maður, er gjörir
Drottin að athvarfi sínu og snýr sér eigi til hinna dramblátu né þeirra er snúist
hafa afleiðis til lygi.
-6- Mörg hefir þú, Drottinn, Guð minn,
gjört dásemdarverk þín og áform þín oss til handa, ekkert kemst í samjöfnuð við
þig. Ef ég ætti að boða þau og kunngjöra, eru þau fleiri en tölu verði á
komið.-7- Á sláturfórnum og matfórnum hefir þú enga þóknun, þú hefir gefið
mér opin eyru brennifórnir og syndafórnir heimtar þú eigi.-8- Þá mælti ég: Sjá,
ég kem, í bókrollunni eru mér reglur settar.
-9- Að gjöra vilja þinn, Guð minn, er mér yndi, og lögmál
þitt er hið innra í mér.-10- Ég hefi boðað réttlætið í miklum söfnuði, ég
hefi eigi haldið vörunum aftur, það veist þú, Drottinn!
-11- Ég
leyndi eigi réttlæti þínu í hjarta mér, ég kunngjörði trúfesti þína og
hjálpræði og dró eigi dul á náð þína og tryggð í hinum mikla söfnuði.-12- Tak
þá eigi miskunn þína frá mér, Drottinn, lát náð þína og trúfesti ætíð
vernda mig.
-13- Því
að ótal hættur umkringja mig, misgjörðir mínar hafa náð mér, svo að ég má eigi
sjá, þær eru fleiri en hárin á höfði mér, mér fellst hugur.-14- Lát þér,
Drottinn, þóknast að frelsa mig, skunda, Drottinn, mér til hjálpar.-15- Lát þá
verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur
með skömm, er óska mér ógæfu.
-16- Lát
þá verða forviða yfir smán sinni, er hrópa háð og spé.
-17- En
allir þeir er leita þín skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði
þínu skulu sífellt segja: Vegsamaður sé Drottinn!-18- Ég er hrjáður og snauður,
en Drottinn ber umhyggju fyrir mér. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, tef eigi, Guð
minn!
|