Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að gleyma mér með öllu? Hversu lengi ætlar þú að hylja auglit þitt fyrir mér? -3- Hversu lengi á ég að bera sút í sál, harm í hjarta dag frá degi? Hversu lengi á óvinur minn að hreykja sér upp yfir mig?-4- Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn, hýrga augu mín, að ég sofni ekki svefni dauðans, -5- að óvinur minn geti ekki sagt: Ég hefi borið af honum! að fjandmenn mínir geti ekki fagnað yfir því, að mér skriðni fótur.-6- Ég treysti á miskunn þína; hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni. Ég vil syngja fyrir Drottni, því að hann hefir gjört vel til mín. |
Leitaðu í Sálma Davíðs: ef þú ert
aðþrengdur, nauðstaddur, og miður þín