Lofið Drottin, öll verk hans, á hverjum stað í ríki hans. Lofa þú Drottin, sála mín.   

Sálmur 31

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -1- Til söngstjórans. Davíðssálmur.

-2- Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu, -3- hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi, ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.-4- Því að þú ert bjarg mitt og vígi, og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.-5- Þú munt draga mig úr neti því, er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.-6- Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!-7- Ég hata þá, er dýrka fánýt falsgoð, en Drottni treysti ég.-8- Ég vil gleðjast og fagna yfir miskunn þinni, því að þú hefir litið á eymd mína, gefið gætur að sálarneyð minni

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -9- og eigi ofurselt mig óvinunum, en sett fót minn á víðlendi.-10- Líkna mér, Drottinn, því að ég er í nauðum staddur, döpruð af harmi eru augu mín, sál mín og líkami.-11- Ár mín líða í harmi og líf mitt í andvörpum, mér förlast kraftur sakir sektar minnar, og bein mín tærast.-12- Ég er að spotti öllum óvinum mínum, til háðungar nábúum mínum og skelfing kunningjum mínum: þeir sem sjá mig á strætum úti flýja mig.-13- Sem dáinn maður er ég gleymdur hjörtum þeirra, ég er sem ónýtt ker.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-14- Ég heyri illyrði margra, skelfing er allt um kring þeir bera ráð sín saman móti mér, hyggja á að svipta mig lífi.-15- En ég treysti þér, Drottinn, ég segi: Þú ert Guð minn!-16- Í þinni hendi eru stundir mínar, frelsa mig af hendi óvina minna og ofsækjenda.-17- Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn, hjálpa mér sakir elsku þinnar.-18- Ó Drottinn, lát mig eigi verða til skammar, því að ég ákalla þig. Lát hina guðlausu verða til skammar, hverfa hljóða til Heljar.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -19- Lát lygavarirnar þagna, þær er mæla drambyrði gegn réttlátum með hroka og fyrirlitningu.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -20- Hversu mikil er gæska þín, er þú hefir geymt þeim er óttast þig, og auðsýnir þeim er leita hælis hjá þér frammi fyrir mönnunum.-21- Þú hylur þá í skjóli auglitis þíns fyrir svikráðum manna, felur þá í leyni fyrir deilum tungnanna.-22- Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir sýnt mér dásamlega náð í öruggri borg.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -23- Ég hugsaði í angist minni: Ég er burtrekinn frá augum þínum. En samt heyrðir þú grátraust mína, er ég hrópaði til þín.-24- Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu, Drottinn verndar trúfasta, en geldur í fullum mæli þeim er ofmetnaðarverk vinna.-25- Verið öruggir og hughraustir, allir þér er vonið á Drottin. 

 

Leitaðu í Sálma Davíðs,
ef þú ert:
  aðþrengdur, nauðstaddur, og miður þín

13 25 31 40 10