Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra illgjarnra,   

Sálmur 27

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -1- Davíðssálmur.
 Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast?

-2- Þegar illvirkjarnir nálgast mig til þess að fella mig, þá verða það andstæðingar mínir og óvinir, sem hrasa og falla.

-3- Þegar her sest um mig, óttast hjarta mitt eigi, þegar ófriður hefst í gegn mér, er ég samt öruggur.

 Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

-4- Eins hefi ég beðið Drottin, það eitt þrái ég: Að ég fái að dveljast í húsi Drottins alla ævidaga mína til þess að fá að skoða yndisleik Drottins, sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans.

-5- Því að hann geymir mig í skjóli á óheilladeginum, hann felur mig í fylgsnum tjalds síns, lyftir mér upp á klett.

-6- Þess vegna hefst upp höfuð mitt yfir óvini mína umhverfis mig, að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans, syngja og leika Drottni.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

-7- Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt, sýn mér miskunn og svara mér!

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

-8- Mér er hugsað til þín, er sagðir: Leitið auglitis míns! Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

-9- Hyl eigi auglit þitt fyrir mér, vísa þjóni þínum eigi frá í reiði. Þú hefir verið fulltingi mitt, hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns.

-10- Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig, tekur Drottinn mig að sér.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

-11- Vísa mér veg þinn, Drottinn, leið mig um slétta braut sakir óvina minna.

-12- Ofursel mig eigi græðgi andstæðinga minna, því að falsvitni rísa í gegn mér og menn er spúa rógmælum.

-13- Ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins á landi lifenda!

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.

-14- Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin.

 

Ef þú ert, haldinn hræðslu og ótta

þá leitaðu í Sálma

3 4 27 46 49 56 91 118