Frá Drottni kemur skrefum mannsins festa, þegar hann hefir þóknun á breytni hans.   

Sálmur 56

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.-1- Til söngstjórans. Lag: Dúfan í fjarlægum eikilundi. Miktam eftir Davíð, þá er Filistar gripu hann í Gat.
-2- Ver mér náðugur, Guð, því að menn kremja mig, liðlangan daginn kreppa bardagamenn að mér.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.-3- Fjandmenn mínir kremja mig liðlangan daginn, því að margir eru þeir, sem berjast gegn mér.
-4- Þegar ég er hræddur, treysti ég þér.
-5- Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, Guði treysti ég, ég óttast eigi. Hvað getur hold gjört mér?
-6- Þeir spilla málefnum mínum án afláts, allt það er þeir hafa hugsað í gegn mér, er til ills.
-7- Þeir áreita mig, þeir sitja um mig, þeir gefa gætur að ferðum mínum, eins og þeir væntu eftir að ná lífi mínu.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -8- Sakir ranglætis þeirra verður þeim engrar undankomu auðið, steyp þjóðunum í reiði þinni, ó Guð.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -9- Þú hefir talið hrakninga mína, tárum mínum er safnað í sjóð þinn, já, rituð í bók þína.
-10- Fyrir því skulu óvinir mínir hörfa undan, er ég hrópa, það veit ég, að Guð liðsinnir mér.
-11- Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, með hjálp Drottins mun ég lofa orð hans.
-12- Guði treysti ég, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?
-13- Á mér hvíla, ó Guð, heit við þig, ég vil gjalda þér þakkarfórnir,
-14- af því þú hefir frelsað sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun, svo að ég megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins.

 

 

 

Ef þú ert, haldinn hræðslu og ótta

þá leitaðu í Sálma

3 4 27 46 49 56 91 118