En hinir hógværu fá landið til eignar, gleðjast yfir ríkulegri gæfu.   

Sálmur 46


Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.-2- Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.
-3- Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -4- Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. Sela 
-5- Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta.
-6- Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -7- Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -8- Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. Sela 
-9- Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.
-10- Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -11- Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.
-12- Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. Sela
 

 

 

Ef þú ert, haldinn hræðslu og ótta

þá leitaðu í Sálma

3 4 27 46 49 56 91 118