Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann. Ver eigi of bráður vegna þeirra er vel gengur, vegna þess manns er svik fremur.   

Sálmur 49

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.-2- Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar,
-3- bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir!

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -4- Munnur minn talar speki, og ígrundun hjarta míns er hyggindi.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -5- Ég hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm
-6- Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku,
-7- þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.
-8- Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann.
-9- Lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að fullu,

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -10- ætti hann að halda áfram að lifa ævinlega og líta ekki í gröfina.
-11- Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.
-12- Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt.
-13- Maðurinn í allri sinni vegsemd stenst ekki, hann verður jafn skepnunum sem farast.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.-14- Svo fer þeim sem eru þóttafullir, og þeim sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra. Sela

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -15- Þeir stíga niður til Heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit, og hinir hreinskilnu drottna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, Hel verður bústaður þeirra.
-16- En mína sál mun Guð endurleysa, því að hann mun hrífa mig úr greipum Heljar. Sela -17- Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur, þegar dýrð húss hans verður mikil,
-18- því að hann tekur ekkert af því með sér, þegar hann deyr, auður hans fer ekki niður þangað á eftir honum.
-19- Hann telur sig sælan meðan hann lifir: Menn lofa þig, af því að þér farnast vel.

Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans. -20- Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna, sem aldrei að eilífu sjá ljósið.
-21- Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus, verður jafn skepnunum sem farast.
 

 

 

Ef þú ert, haldinn hræðslu og ótta

þá leitaðu í Sálma

3 4 27 46 49 56 91 118