Sálmur
34
-1-
Sálmur Davíðs, þá er hann gjörði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek, svo
að Abímelek rak hann í burt, og hann fór burt. -2- Ég vil vegsama Drottin alla tíma,
ætíð sé lof hans mér í munni. -3- Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu
skulu heyra það og fagna.
-4- Miklið
Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.-5- Ég leitaði Drottins, og hann
svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist. -6- Lítið til hans og
gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast.-7- Hér er volaður maður sem hrópaði,
og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.
-8- Engill Drottins setur vörð kringum
þá er óttast hann, og frelsar þá.-9- Finnið og sjáið, að Drottinn er góður,
sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum.-10- Óttist Drottin, þér hans heilögu,
því að þeir er óttast hann líða engan skort.
-11- Ung ljón eiga við skort að búa og
svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.-12- Komið, börn,
hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins.-13- Ef einhver óskar lífs, þráir
lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,-14- þá varðveit tungu þína frá illu og
varir þínar frá svikatali,
-15- forðast illt og gjörðu gott,
leita friðar og legg stund á hann.-16- Augu Drottins hvíla á réttlátum, og eyru hans
gefa gaum að hrópi þeirra.-17- Auglit Drottins horfir á þá er illa breyta, til þess
að afmá minningu þeirra af jörðunni.
-18- Ef réttlátir hrópa, þá heyrir
Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá.-19- Drottinn er nálægur þeim er
hafa sundurmarið hjarta, þeim er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.-20- Margar eru
raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.
-21- Hann gætir allra beina hans, ekki
eitt af þeim skal brotið.-22- Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn
réttláta, skulu sekir dæmdir.-23- Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er
leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur.
|