Ó að hróp mitt mætti nálgast auglit þitt,
Drottinn, veit mér að skynja í samræmi við orð þitt.
Ó að grátbeiðni mín mætti koma fyrir auglit þitt, frelsa mig
samkvæmt fyrirheiti þínu.
Lof um þig skal streyma mér af vörum, því að þú kennir mér
lög þín.
Tunga mín skal mæra orð þitt, því að öll boðorð þín eru
réttlæti.
Hönd þín veiti mér lið, því að þín fyrirmæli hefi ég
útvalið.
Ég þrái hjálpræði þitt, Drottinn, og lögmál þitt er unun
mín.
Lát sál mína lifa, að hún megi lofa þig og dómar þínir veiti
mér lið.
Ég villist sem týndur sauður, leita þú þjóns þíns, því að
þínum boðum hefi ég eigi gleymt.