Höfðingjar ofsækja mig að ástæðulausu, en
hjarta mitt óttast orð þín.
Ég gleðst yfir fyrirheiti þínu eins og sá er fær mikið herfang.
Ég hata lygi og hefi andstyggð á henni, en þitt lögmál elska ég.
Sjö sinnum á dag lofa ég þig sakir þinna réttlátu ákvæða.
Gnótt friðar hafa þeir er elska lögmál þitt,
og þeim er við
engri hrösun hætt.
Ég vænti hjálpræðis þíns, Drottinn,
og framkvæmi boð þín.
Sál mín varðveitir reglur þínar,
og þær elska ég mjög.
Ég varðveiti fyrirmæli þín og reglur, allir mínir vegir eru þér
augljósir.