Sálmur
41
-1- Til söngstjórans.
Davíðssálmur.
-2- Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar
Drottinn honum.
-3- Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í
landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans.
-4- Drottinn styður hann á
sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm.
-5- Ég sagði: Ver mér náðugur,
Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti
þér.
-6- Óvinir mínir
biðja mér óbæna: Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?
-7- Og ef einhver kemur
til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer
út og lætur dæluna ganga.
-8- Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á
illt mér til handa:
-9- Hann er altekinn helsótt, hann er
lagstur og rís eigi upp framar.
-10- Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er
etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér.
-11- En þú, Drottinn, ver
mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda
þeim.
-12- Af
því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér.
-13- Vegna sakleysis míns hélst þú
mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu.________
-14- Lofaður sé Drottinn, Guð
Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.