Þá kemur Jesús frá Galíleu að Jórdan til
Jóhannesar að taka skírn hjá honum.
Jóhannes vildi varna honum þess og sagði:
Mér er þörf að skírast af þér, og þú kemur til mín!
Jesús svaraði honum: Lát það nú
eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti. Og hann lét það eftir honum.