1Kor 10:1-13
-1- Ég vil ekki, bræður, að yður skuli vera
ókunnugt um það, að feður vorir voru allir undir skýinu og fóru allir yfir um
hafið.
-2- Allir voru skírðir til Móse í skýinu og hafinu.
-3- Allir neyttu hinnar sömu andlegu fæðu
-4- og drukku allir hinn sama andlega drykk. Þeir drukku af hinum andlega kletti, sem
fylgdi þeim. Kletturinn var Kristur.
-5- En samt hafði Guð enga velþóknun
á flestum þeirra og þeir féllu í eyðimörkinni.
-6- Þessir hlutir hafa
gjörst sem fyrirboðar
fyrir oss, til þess að vér verðum ekki sólgnir í það, sem illt er, eins og þeir
urðu sólgnir í það.
-7- Verðið ekki skurðgoðadýrkendur, eins og nokkrir þeirra. Ritað er: Lýðurinn
settist niður til að eta og drekka, og þeir stóðu upp til að leika.
-8- Drýgjum ekki heldur hórdóm, eins og nokkrir þeirra drýgðu hórdóm, og
tuttugu og þrjár þúsundir féllu á einum degi.
-9- Freistum ekki heldur
Drottins, eins og nokkrir þeirra freistuðu hans, þeir biðu bana af höggormum.
-10- Möglið ekki heldur
eins og nokkrir þeirra mögluðu, þeir fórust fyrir eyðandanum.
-11- Allt þetta kom yfir þá sem
fyrirboði, og það er ritað til viðvörunar oss, sem endir aldanna er kominn yfir.
-12- Sá, er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki.
1Kor 11:1-1
-1- Verið eftirbreytendur mínir eins og ég er eftirbreytandi Krists.