-121- Ég hefi iðkað rétt og réttlæti, sel mig
eigi í hendur kúgurum mínum.
-122- Gakk í ábyrgð fyrir þjón þinn, honum til heilla, lát eigi
ofstopamennina kúga mig.
-123- Augu mín tærast af þrá eftir hjálpræði þínu og eftir þínu
réttláta fyrirheiti.
-124-
Far með þjón þinn eftir miskunn þinni og kenn mér lög þín.
-125- Ég er þjónn þinn, veit mér skyn, að ég megi þekkja reglur
þínar.
-126- Tími er kominn fyrir Drottin að taka í taumana, þeir hafa rofið
lögmál þitt.
-127- Þess vegna elska ég boð þín framar en gull og skíragull.
-128- Þess vegna held ég beina leið eftir öllum fyrirmælum þínum, ég
hata sérhvern lygaveg.