-97-
Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan liðlangan daginn íhuga ég það.
-98-
Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að þau heyra mér
til um eilífð.
-99-
Ég er hyggnari en allir kennarar mínir, því að ég íhuga reglur þínar.
-100-
Ég er skynsamari en öldungar, því að ég held fyrirmæli þín.
-101-
Ég held fæti mínum frá hverjum vondum vegi til þess að gæta orðs þíns.
-102-
Frá ákvæðum þínum hefi ég eigi vikið, því að þú hefir frætt mig.
-103-
Hversu sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi betri munni mínum.
-104-
Af fyrirmælum þínum er ég skynsamur orðinn, fyrir því hata ég sérhvern
lygaveg.