-41- Lát náð þína koma yfir mig, Drottinn,
hjálpræði þitt, samkvæmt fyrirheiti þínu,
-42- að ég fái andsvör veitt þeim er smána mig, því að þínu orði
treysti ég.
-43- Og tak aldrei sannleikans orð burt úr munni mínum, því að ég
bíð dóma þinna.
-44- Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt, um aldur og ævi,
-45- þá mun ég ganga um víðlendi, því að ég leita fyrirmæla þinna,
-46- þá mun ég tala um reglur þínar frammi fyrir konungum, og eigi
skammast mín,
-47- og leita unaðar í boðum þínum, þeim er ég elska,
-48- og rétta út hendurnar eftir boðum þínum, þeim er ég elska, og
íhuga lög þín.