Ég er útlendingur á
jörðunni,
dyl eigi boð þín fyrir mér.
Sál mín er kvalin af
þrá eftir ákvæðum þínum alla tíma.
Þú hefir ógnað
ofstopamönnunum,
bölvaðir eru þeir, sem víkja frá boðum þínum.
Velt þú af mér háðung
og skömm,
því að ég hefi haldið reglur þínar.
Þótt þjóðhöfðingjar
sitji og taki saman ráð sín gegn mér,
þá íhugar þjónn þinn
lög þín.
Og reglur þínar eru unun
mín,
boð þín eru ráðgjafar mínir.