En ef þú
hlýðir ekki
raustu Drottins Guðs þíns,
svo að þú varðveitir og haldir allar skipanir hans og lög, er ég
legg fyrir þig í dag, þá munu fram við þig koma og á þér hrína allar þessar
bölvanir:
-16- Bölvaður ert þú í borginni og bölvaður ert þú á akrinum.
-17- Bölvuð er karfa þín og deigtrog þitt.
-18- Bölvaður er ávöxtur kviðar þíns og ávöxtur lands þíns, viðkoma
nautgripa þinna og burðir hjarðar þinnar.
-19- Bölvaður ert þú, þegar þú gengur inn, og bölvaður ert þú, þegar þú
gengur út.
-20- Drottinn mun senda yfir þig bölvun, skelfing og ógnun í öllu því, er þú
tekur þér fyrir hendur að gjöra, uns þú gjöreyðist og fyrirferst skyndilega sökum
illra verka þinna sökum þess, að þú yfirgafst mig.
-21- Drottinn mun láta drepsóttina við þig loða, þar til er hann eyðir þér úr
landi því, er þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar.
-22- Drottinn mun slá þig með tæring og köldu, hita og bruna, með ofþurrki,
korndrepi og gulnan, og mun þetta ásækja þig uns þú líður undir lok.
-23- Himinninn yfir höfði þér skal verða sem eir og jörðin undir fótum þér
sem járn.
-24- Í stað regns mun Drottinn láta ryk og sandfok koma yfir land þitt; það mun
falla yfir þig af himni, uns þú ert gjöreyddur.
-25- Drottinn mun láta þig bíða ósigur fyrir óvinum þínum. Um einn veg munt
þú fara í móti þeim, en um sjö vegu munt þú flýja undan þeim, og þú munt
verða grýla fyrir öll konungsríki jarðarinnar.
-26- Og hræ þín munu verða æti fyrir alla fugla himinsins og fyrir dýr
jarðarinnar, og enginn mun fæla þau burt.
-27- Drottinn mun slá þig með egypskum kaunum: með kýlum, kláða og útbrotum,
svo að þú skalt verða ólæknandi.
-28- Drottinn mun slá þig með vitfirring, blindni og hugarsturlan.
-29- Þú munt fálma um hábjartan dag, eins og blindur maður fálmar í myrkri, og
þú munt enga gæfu hljóta á vegum þínum, og þú munt alla daga sæta tómri
undirokun og ránskap, og enginn mun hjálpa þér.
-30- Þú munt festa þér konu, en annar maður mun leggjast með henni. Þú munt
reisa hús, en eigi búa í því. Þú munt planta víngarð, en engar hans nytjar hafa.
-31- Uxa þínum mun slátrað verða fyrir augunum á þér, en þú munt ekki fá
neitt af honum að eta. Asna þínum mun rænt verða að þér ásjáandi, en hann mun
eigi hverfa aftur til þín. Sauðir þínir munu seldir verða í hendur óvinum þínum,
og enginn mun hjálpa þér.
-32- Synir þínir og dætur munu seldar verða í hendur annarri þjóð, og augu
þín skulu horfa á það og daprast af þrá eftir þeim allan daginn, en þú skalt
eigi fá að gjört.
-33- Ávöxt lands þíns og allt það, er þú hefir aflað þér með striti þínu,
mun þjóð ein eta, sem þú ekki þekkir, og þú munt sæta áþján einni og undirokun
alla daga,
-34- og þú munt verða vitstola út af því, er þú verður að horfa upp á.
-35- Drottinn mun slá þig með illkynjuðum ólæknandi kaunum á knjám og
fótleggjum, frá iljum og allt upp á hvirfil.
-36- Drottinn mun leiða þig og konung þinn, þann er þú munt taka yfir þig, til
þeirrar þjóðar, er hvorki þú né feður þínir hafa þekkt, og þar munt þú
þjóna öðrum guðum, stokkum og steinum.
-37- Og þú munt verða að undri, orðskvið og spotti meðal allra þjóða, þeirra
er Drottinn leiðir þig til.
-38- Mikið kornsæði munt þú færa út á akrana, en litlu skalt þú aftur inn
safna, því að engisprettur skulu upp eta það.
-39- Þú munt planta víngarða og yrkja þá, en vín munt þú hvorki drekka né
leggja fyrir til geymslu, því að maðkurinn mun eyða því.
-40- Þú munt hafa olíutré um allt land þitt, en með olíu munt þú eigi smyrja
þig, því að olífur þínar munu detta af.
-41- Þú munt geta sonu og dætur, en ekki fá að njóta þeirra, því að þau munu
fara í útlegð.
-42- Öll tré þín og ávöxt lands þíns munu engispretturnar leggja undir sig.
-43- Útlendingurinn, sem hjá þér er, mun stíga hærra og hærra upp yfir þig, en
þú færast lengra og lengra niður á við.
-44- Hann mun lána þér, en þú munt eigi lána honum, hann mun verða höfuðið,
en þú munt verða halinn.
-45- Allar þessar bölvanir munu koma fram á þér, elta þig og á þér hrína, uns
þú ert gjöreyddur, af því að þú hlýddir ekki raustu Drottins Guðs þíns, að
varðveita skipanir hans og lög, þau er hann fyrir þig lagði,
-46- og þær skulu fylgja þér og niðjum þínum ævinlega sem tákn og undur.
-47- Fyrir því að þú þjónaðir ekki Drottni Guði þínum með gleði og fúsu
geði, af því að þú hafðir allsnægtir,
-48- þá skalt þú þjóna óvinum þínum, þeim er Drottinn sendir í móti þér,
hungraður og þyrstur, klæðlaus og farandi alls á mis, og hann mun leggja járnok á
háls þér, uns hann hefir gjöreytt þér.
-49- Drottinn mun stefna í móti þér þjóð einni úr fjarlægð, frá enda
jarðarinnar, og kemur hún fljúgandi eins og örn, þjóð, hverrar tungu þú ekki
skilur,
-50- illúðlegri þjóð, sem eigi skeytir manngrein gamalmenna og enga vægð sýnir
ungmennum.
-51- Og hún mun eta ávöxt fénaðar þíns og ávöxt lands þíns, uns þú ert
gjöreyddur. Hún mun ekki leifa þér korni, aldinlegi og olíu, viðkomu nauta þinna
né burði hjarðar þinnar, uns hún hefir gjört út af við þig.
-52- Hún mun gjöra umsát um þig í öllum borgum þínum, uns hinir háu og
rammgjörvu múrar þínir, sem þú treystir á, eru hrundir um land þitt allt. Og hún
mun gjöra umsát um þig í öllum borgum þínum alls staðar í landi þínu, því er
Drottinn Guð þinn gefur þér.
-53- Og þú munt eta ávöxt kviðar þíns, holdið af sonum þínum og dætrum,
þeim er Drottinn Guð þinn hefir gefið þér. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga
og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum.
-54- Jafnvel sá maður meðal þín, sem mjúklífur er og mjög kveifarlegur, mun
óblíðu auga líta bróður sinn, konuna í faðmi sínum og þau börnin sín, er hann
enn á eftir,
-55- og eigi tíma að gefa neinu af þeim neitt af holdi barna sinna, sem hann etur,
af því að hann hefir ekkert annað til. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga og
þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum í öllum borgum þínum.
-56- Mjúklíf og kveifarleg kona meðal þín, sem aldrei hefir reynt að tylla fæti
sínum á jörðina af kveifarhætti og tepruskap, mun óblíðu auga líta manninn í
faðmi sínum, son sinn og dóttur sína,
-57- og fylgjuna, sem út gengur af skauti hennar, og börn sín, þau er hún elur,
því að hún etur þau sjálf á laun, þegar allar bjargir eru bannaðar. Svo nærri
mönnum mun umsátrið ganga og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum í
öllum borgum þínum.
-58- Ef þú gætir þess eigi að halda öll fyrirmæli þessa lögmáls, þau er
rituð eru í þessari bók, með því að óttast þetta dýrlega og hræðilega nafn,
DROTTINN GUÐ ÞINN,
-59- þá mun Drottinn slá þig og niðja þína með feiknaplágum, með miklum
plágum og þrálátum, með illkynjuðum sjúkdómum og þrálátum,
-60- og hann mun aftur láta yfir þig koma allar hinar egypsku sóttir, þær er þú
hræðist, og þær munu við þig loða.
-61- Auk þess mun Drottinn láta yfir þig koma alla þá sjúkdóma og allar þær
plágur, sem ekki eru ritaðar í þessari lögmálsbók, uns þú ert gjöreyddur.
-62- Aðeins fámennur hópur skal eftir verða af yður, í stað þess að þér
áður voruð sem stjörnur himins að fjölda til, af því að þú hlýddir eigi raustu
Drottins Guðs þíns.
-63- Og eins og Drottinn áður fyrri hafði yndi af því að gjöra vel við yður og
margfalda yður, eins mun Drottinn hafa yndi af að tortíma yður og gjöreyða, og þér
munuð verða reknir burt úr því landi, er þér haldið nú inn í til þess að taka
það til eignar.
-64- Og Drottinn mun dreifa þér meðal þjóðanna frá einu heimsskauti til annars,
og þar munt þú þjóna öðrum guðum, sem hvorki þú né feður þínir hafa þekkt,
stokkum og steinum.
-65- Og meðal þessara þjóða munt þú eigi mega búa í næði, og hvergi mun
hvíldarstaður vera á fæti þínum, heldur mun Drottinn gefa þér þar skjálfandi
hjarta, þrotnandi augu og ráðþrota sál.
-66- Líf þitt mun leika fyrir þér sem á þræði, og þú munt hræddur vera nótt
og dag og aldrei vera ugglaus um líf þitt.
-67- Á morgnana muntu segja: Ó, að það væri komið kveld! og á kveldin muntu
segja: Ó, að það væri kominn morgunn! sökum hræðslu þeirrar, er gagntekið hefir
hjarta þitt, og sökum þess, er þú verður að horfa upp á.
-68- Drottinn mun flytja þig aftur til Egyptalands á skipum, þá leið, er ég
sagði um við þig: Þú skalt aldrei framar líta hana Og þar munuð þér boðnir
verða óvinum yðar til kaups að þrælum og ambáttum, en enginn vilja kaupa.