Sálmur
56
Miktam eftir
Davíð, þá er Filistar gripu hann í Gat.
Ver mér náðugur, Guð, því að menn
kremja mig, liðlangan daginn kreppa bardagamenn að mér.
Fjandmenn mínir kremja mig liðlangan daginn, því að margir eru
þeir, sem berjast gegn mér.
Þegar ég er hræddur, treysti ég þér.
Með Guðs
hjálp mun ég lofa orð hans, Guði treysti ég, ég óttast eigi. Hvað getur hold
gjört mér?
Þeir spilla málefnum mínum án afláts, allt það er þeir hafa
hugsað í gegn mér, er til ills.
Þeir áreita mig, þeir sitja um mig, þeir gefa
gætur að ferðum mínum, eins og þeir væntu eftir að ná lífi mínu.
Sakir ranglætis þeirra verður þeim engrar undankomu auðið,
steyp þjóðunum í reiði þinni, ó Guð.
Þú hefir talið hrakninga mína, tárum mínum er safnað í sjóð
þinn, já, rituð í bók þína.
Fyrir því skulu óvinir mínir hörfa undan, er
ég hrópa, það veit ég, að Guð liðsinnir mér.
Með Guðs hjálp mun ég lofa
orð hans, með hjálp Drottins mun ég lofa orð hans.
Guði treysti ég, ég óttast
eigi, hvað geta menn gjört mér?
Á mér hvíla, ó Guð, heit við þig, ég vil
gjalda þér þakkarfórnir,
af því þú hefir frelsað sál mína frá dauða og
fætur mína frá hrösun, svo að ég megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins.