Sálmur 5
Heyr orð mín, Drottinn,
gef gaum að andvörpum mínum.
Hlýð
þú á kveinstafi mína,
konungur minn og Guð minn,
því að til þín bið ég.
Drottinn, á morgnana heyrir þú
rödd mína,
á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig,
og ég bíð þín.
Þú
ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki,
hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.
Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér,
þú hatar alla er illt gjöra.
Þú tortímir þeim, sem lygar mæla,
á blóðvörgum og svikurum
hefir Drottinn andstyggð.
En ég fæ að ganga í hús þitt
fyrir mikla miskunn þína,
fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri
í ótta
frammi fyrir þér.
Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna,
gjör sléttan veg þinn fyrir mér.
Einlægni er ekki til í munni þeirra,
hjarta
þeirra er glötunardjúp.
Kok þeirra er opin gröf,
með tungu sinni hræsna þeir.
Dæm þá seka, Guð, falli þeir
sakir ráðagjörða sinna,
hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra,
því að
þeir storka þér.
Allir kætast, er treysta þér,
þeir fagna að eilífu, því
að þú verndar þá.
Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.
Því að
þú, Drottinn, blessar hinn réttláta,
hlífir honum með náð þinni eins og með
skildi.
|