Sálmur 27
Davíðssálmur.
Drottinn er ljós mitt og fulltingi,
hvern ætti ég
að óttast?
Drottinn er vígi lífs míns,
hvern ætti ég að hræðast?
Þegar
illvirkjarnir nálgast mig
til þess að fella mig,
þá verða það andstæðingar
mínir
og óvinir, sem hrasa og falla.
Þegar her sest um mig,
óttast hjarta mitt
eigi,
þegar ófriður hefst í gegn mér,
er ég samt öruggur.
Eins hefi ég beðið Drottin, það
eitt þrái ég:
Að ég fái að dveljast í húsi Drottins
alla ævidaga mína til þess
að fá að skoða yndisleik Drottins,
sökkva mér niður í hugleiðingar
í musteri
hans.
Því að hann geymir mig í skjóli
á óheilladeginum,
hann felur mig í
fylgsnum tjalds síns,
lyftir mér upp á klett.
Þess vegna hefst upp höfuð mitt
yfir óvini mína umhverfis mig,
að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans,
syngja og leika Drottni.
Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt,
sýn mér miskunn og svara mér!
Mér er hugsað til þín, er sagðir:
Leitið auglitis míns!
Ég
vil leita auglitis þíns, Drottinn.
Hyl eigi auglit þitt fyrir mér,
vísa þjóni þínum eigi frá í
reiði.
Þú hefir verið fulltingi mitt,
hrind mér eigi burt og yfirgef mig eigi,
þú
Guð hjálpræðis míns.
Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig,
tekur Drottinn mig að sér.
Vísa mér veg þinn, Drottinn,
leið mig um slétta braut sakir
óvina minna.
Ofursel mig eigi græðgi andstæðinga minna,
því að falsvitni rísa
í gegn mér
og menn er spúa rógmælum.
Ég treysti því að fá að sjá gæsku
Drottins
á landi lifenda!
Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur,
já, vona á Drottin.