Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.   

Sálmur 14 

 Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
 
Heimskinginn segir í hjarta sínu:
Guð er ekki til.
Ill og andstyggileg er breytni þeirra,
enginn gjörir það sem gott er.

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
 Drottinn lítur af himni niður á mennina
til þess að sjá,
hvort nokkur sé hygginn,
nokkur sem leiti Guðs.

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
 Allir eru viknir af leið, allir spilltir,
enginn gjörir það sem gott er ekki einn.

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
Skyldu þeir ekki fá að kenna á því,
allir illgjörðamennirnir,
þeir er eta lýð minn sem brauð væri
og ákalla eigi Drottin?

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
 Þá skulu þeir verða mjög óttaslegnir,
því að Guð er hjá kynslóð réttlátra.

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
Þér megið láta ráð hinna hrjáðu til skammar verða,
því að Drottinn er samt athvarf þeirra.

Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.
Ó að hjálpræði Ísraels komi frá Síon!
Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns,
skal Jakob fagna og Ísrael gleðjast.