Davíðssálmur.

Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að gleyma
mér með öllu? Hversu lengi ætlar þú að hylja auglit þitt fyrir mér?

Hversu lengi á ég að bera sút í
sál, harm í hjarta dag frá degi? Hversu lengi á óvinur minn að hreykja sér upp yfir
mig?

Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn, hýrga augu mín, að ég sofni ekki
svefni dauðans,

að óvinur minn geti ekki sagt: Ég
hefi borið af honum! að fjandmenn mínir geti ekki fagnað yfir því, að mér skriðni
fótur.

Ég treysti
á miskunn þína; hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni. Ég vil syngja fyrir Drottni,
því að hann hefir gjört vel til mín.