81- Sál mín tærist af þrá eftir hjálpræði
þínu, ég bíð eftir orði þínu.
-82- Augu mín tærast af þrá eftir fyrirheiti þínu: Hvenær munt þú
hugga mig?
-83- Því að ég er orðinn eins og belgur í reykhúsi, en lögum þínum
hefi ég eigi gleymt.
-84- Hversu margir eru dagar þjóns þíns? Hvenær munt þú heyja dóm á
ofsækjendum mínum?
-85- Ofstopamenn hafa grafið mér grafir, menn, er eigi hlýða lögmáli
þínu.
-86- Öll boð þín eru trúfesti. Menn ofsækja mig með lygum, veit þú
mér lið.
-87- Nærri lá, að þeir gjörðu út af við mig á jörðunni, og þó
hafði ég eigi yfirgefið fyrirmæli þín.
-88- Lát mig lífi halda sakir miskunnar þinnar, að ég megi varðveita
reglurnar af munni þínum.