Sálmur 119

 

-50- Þetta er huggun mín í eymd minni, að orð þitt lætur mig lífi halda.

-51- Ofstopamenn spotta mig ákaflega, en ég vík eigi frá lögmáli þínu.

-52- Ég minnist dóma þinna frá öndverðu, Drottinn, og læt huggast.

-53- Heiftarreiði við óguðlega hrífur mig, við þá er yfirgefa lögmál þitt.

-54- Lög þín eru efni ljóða minna á þessum stað, þar sem ég er gestur.

-55- Um nætur minnist ég nafns þíns, Drottinn, og geymi laga þinna.

-56- Þetta er orðin hlutdeild mín, að halda fyrirmæli þín.