-33- Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi
halda þau allt til enda.
-34- Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af
öllu hjarta.
-35- Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.
-36- Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.
-37- Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum
þínum.
-38- Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er
þig óttast.
-39- Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði
þín eru góð.
-40- Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.