Jes 29:9-14
-9- Fallið í stafi og undrist, gjörið yður sjónlausa og verið blindir!
Gjörist drukknir, og þó ekki
af víni, reikið,
og þó ekki af áfengum drykk.
-10- Því að Drottinn hefir úthellt yfir yður svefnsemi-anda og aftur lukt augu yðar spámennina og brugðið hulu yfir höfuð
yðar þá sem vitranir fá.
-11- Öll opinberun er yður
sem orðin í innsiglaðri bók. Sé hún fengin þeim, sem kann að lesa, og sagt: Les þú þetta, þá segir hann: Ég get það
ekki, því að hún er innsigluð.
-12- En sé bókin fengin þeim, sem eigi kann
að lesa, og sagt: Les þú
þetta, þá segir hann: Ég er ekki
læs.
-13- Drottinn sagði: Með því
að þessi lýður nálgast mig með munni
sínum og heiðrar
mig með vörum sínum, en
fjarlægir hjarta sitt langt í burt
frá mér, og með því að ótti þeirra fyrir mér er manna boðorð, lærð utan bókar,
-14- sjá,
fyrir því mun ég enn fara undursamlega með þennan lýð, undursamlega
og undarlega. Speki spekinganna skal komast í þrot og hyggindi hyggindamannanna
fara í felur.