-36- Með öruggri vissu viti þá öll Ísraels ætt, að þennan
Jesú, sem þér krossfestuð, hefur Guð gjört bæði að Drottni og Kristi.
-37- Er þeir heyrðu þetta, var sem stungið væri
í hjörtu þeirra, og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: Hvað eigum vér að gjöra, bræður?
-38- Pétur sagði við þá: Gjörið iðrun og látið skírast
hver og einn í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar; þá
munuð þér öðlast að gjöf heilagan anda.
-39- Því að yður er ætlað fyrirheitið, börnum yðar og öllum
þeim, sem í fjarlægð eru, öllum þeim, sem Drottinn Guð vor kallar til sín.