-3- Lofaður sé Guð og faðir Drottins
vors Jesú Krists, sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í
himinhæðum.
-4- Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann
útvalið oss í Kristi, til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í
kærleika sínum
-5- ákvað hann
fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
-6- til
vegsemdar dýrð hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
-7-
Í honum, fyrir hans blóð eigum vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
-8- Svo auðug
er náð hans, sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
-9- Og hann
kunngjörði oss leyndardóm vilja síns, þá ákvörðun,
-10- sem hann
hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi: Hann
ætlaði að safna öllu því, sem er á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt
höfuð í Kristi.
-11- Í honum
höfum vér þá líka öðlast arfleifðina, eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun
hans, er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns,
-12- til þess
að vér, sem áður höfum sett von vora til Krists, skyldum vera dýrð hans til
vegsemdar.
-13- Í honum eruð og þér,
eftir að hafa heyrt orð sannleikans, fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar og tekið
trú á hann og verið merktir innsigli heilags anda, sem yður var fyrirheitið.
-14- Hann er
pantur arfleifðar vorrar, að vér verðum endurleystir Guði til eignar, dýrð
hans til vegsemdar.