Sálmur 119

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-145- Ég kalla af öllu hjarta, bænheyr mig, Drottinn, ég vil halda lög þín.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-146- Ég ákalla þig, hjálpa þú mér, að ég megi varðveita reglur þínar.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-147- Ég er á ferli fyrir dögun og hrópa og bíð orða þinna.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-148- Fyrr en vakan hefst eru augu mín vökul til þess að íhuga orð þitt.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-149- Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni, lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-150- Þeir eru nærri, er ofsækja mig af fláræði, þeir eru langt burtu frá lögmáli þínu.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-151- Þú ert nálægur, Drottinn, og öll boð þín eru trúfesti.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-152- Fyrir löngu hefi ég vitað um reglur þínar, að þú hefir grundvallað þær um eilífð.