Sálmur 119

 

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-105- Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-106- Ég hefi svarið og haldið það að varðveita þín réttlátu ákvæði.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-107- Ég er mjög beygður, Drottinn, lát mig lífi halda eftir orði þínu.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-108- Haf þóknun á sjálfviljafórnum munns míns, Drottinn, og kenn mér ákvæði þín.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-109- Líf mitt er ætíð í hættu, en þínu lögmáli hefi ég eigi gleymt.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-110- Óguðlegir hafa lagt snöru fyrir mig, en ég hefi eigi villst frá fyrirmælum þínum.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-111- Reglur þínar eru eign mín um aldur, því að þær eru yndi hjarta míns.

Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.-112- Ég hneigi hjarta mitt að því að breyta eftir lögum þínum, um aldur og allt til enda.