Sálmur 119

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-89- Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-90- Frá kyni til kyns varir trúfesti þín, þú hefir grundvallað jörðina, og hún stendur.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-91- Eftir ákvæðum þínum stendur hún enn í dag, því að allt lýtur þér.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-92- Ef lögmál þitt hefði eigi verið unun mín, þá hefði ég farist í eymd minni.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-93- Ég skal eigi gleyma fyrirmælum þínum að eilífu, því að með þeim hefir þú látið mig lífi halda.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-94- Þinn er ég, hjálpa þú mér, því að ég leita fyrirmæla þinna.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-95- Óguðlegir bíða mín til þess að tortíma mér, en ég gef gætur að reglum þínum.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-96- Á allri fullkomnun hefi ég séð endi, en þín boð eiga sér engin takmörk.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-97- Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan liðlangan daginn íhuga ég það.

Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum.-98- Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að þau heyra mér til um eilífð.