119-05  

Sálmur 119 - 5

119-05

-33- Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi halda þau allt til enda.

-34- Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.

-35- Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.

-36- Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.

-37- Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum þínum.

-38- Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er þig óttast.

-39- Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.

-40- Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.