Lúk 4:1-17

-1- En Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda. Leiddi andinn hann um óbyggðina

-2- fjörutíu daga, en djöfullinn freistaði hans. Ekki neytti hann neins þá daga, og er þeir voru liðnir, var hann hungraður.

 a_niður.gif (2097 bytes)

Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,

-3- En djöfullinn sagði við hann: Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú steini þessum, að hann verði að brauði.

-4- Og Jesús svaraði honum: Ritað er: Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði.

a_niður.gif (2097 bytes)

Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,

5- Þá fór hann með hann upp og sýndi honum á augabragði öll ríki veraldar.

-6- Og djöfullinn sagði við hann: Þér mun ég gefa allt þetta veldi og dýrð þess, því að mér er það í hendur fengið, og ég get gefið það hverjum sem ég vil.

-7- Ef þú fellur fram og tilbiður mig, skal það allt verða þitt.

-8- Jesús svaraði honum: Ritað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.

a_niður.gif (2097 bytes)

Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,

-9- Þá fór hann með hann til Jerúsalem, setti hann á brún musterisins og sagði við hann: Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér hér ofan,

-10- því að ritað er: Hann mun fela englum sínum að gæta þín

-11- og: þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini.

-12- Jesús svaraði honum: Sagt hefur verið: Ekki skalt þú freista Drottins, Guðs þíns.

 

Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,

-13- Og er djöfullinn hafði lokið allri freistni, vék hann frá honum að sinni.

-14- En Jesús sneri aftur til Galíleu í krafti andans, og fóru fregnir af honum um allt nágrennið.

 

Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,

-15- Hann kenndi í samkundum þeirra, og lofuðu hann allir.

-16- Hann kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa.

-17- Var honum fengin bók Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn, þar sem ritað er:

Ritað er