Hlusta                                                 


Þeir gleðjast yfir nafni þínu alla daga 
og fagna yfir réttlæti þínu,


Þér munuð með fögnuði vatni ausa
 úr lindum hjálpræðisins.


 Hjá Drottni einum, ..
er réttlæti og vald. 
Allir fjendur hans 
skulu til hans koma 
og blygðast sín.  
Allir Ísraelsniðjar skulu 
réttlætast fyrir Drottin 
og miklast af honum.


 Gleðjist yfir Drottni og fagnið, 
þér réttlátir, 
kveðið fagnaðarópi, 
allir hjartahreinir!


Nú hefur réttlæti Guðs,
 sem lögmálið og spámennirnir vitna um, 
verið opinberað án lögmáls. 
Það er: Réttlæti Guðs 
fyrir trú á Jesú Krist 
öllum þeim til handa, sem trúa... 
  til þess að auglýsa réttlæti sitt 
á yfirstandandi tíma, 
að hann sé sjálfur réttlátur 
og réttlæti þann, 
sem trúir á Jesú.


Verið ávallt glaðir í Drottni. 
Ég segi aftur: Verið glaðir.


 Þér hafið ekki séð hann, 
en elskið hann þó. 
Þér hafið hann ekki nú fyrir augum yðar, 
en trúið samt á hann 
og fagnið með óumræðilegri 
og dýrlegri gleði,


  Guðs ríki er 
réttlæti, friður og fögnuður 
í heilögum anda.