Vegstikur 10. dags


Textinn er tekin úr: Matteusarguðspjall 22:42-42
Hvað virðist yður um Krist?  

Textinn er tekin úr:  Sálmarnir 24:9-10
Þér hlið, lyftið höfðum yðar, 
hefjið yður, þér öldnu dyr, 
að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? 
Drottinn hersveitanna, 
hann er konungur dýrðarinnar.  

 Textinn er tekin úr:  Opinberunarbókin 19:14-16
Hersveitirnar, sem á himni eru, 
fylgdu honum á hvítum hestum,  
Og á skikkju sinni og lend sinni
 hefur hann ritað nafn: 
Konungur konunga 
og Drottinn drottna.


Yður sem trúið er hann dýrmætur, 
en hinum vantrúuðu er steinninn, 
sem smiðirnir höfnuðu, 
orðinn að hyrningarsteini 
og: ásteytingarsteini og hrösunarhellu. 
 

Vér prédikum Krist krossfestan, 
Gyðingum hneyksli 
og heiðingjum heimsku, 
en hinum kölluðu, 
bæði Gyðingum og Grikkjum, 
Krist, kraft Guðs 
og speki Guðs.


Meira að segja met ég allt vera tjón 
hjá þeim yfirburðum að þekkja 
Jesú Krist, Drottin minn. 
Sakir hans hef ég misst allt 
og met það sem sorp, 
til þess að ég geti áunnið Krist 
og reynst vera í honum. 
 

  Drottinn, þú veist allt. 
Þú veist, að ég elska þig.  

 V