Efe 1:3-14

-3- Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himinhæðum.

-4- Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi, til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum

-5- ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun

-6- til vegsemdar dýrð hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.

-7- Í honum, fyrir hans blóð eigum vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.

-8- Svo auðug er náð hans, sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.

-9- Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns, þá ákvörðun,

-10- sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi: Hann ætlaði að safna öllu því, sem er á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í Kristi.

-11- Í honum höfum vér þá líka öðlast arfleifðina, eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans, er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns,

-12- til þess að vér, sem áður höfum sett von vora til Krists, skyldum vera dýrð hans til vegsemdar.

-13- Í honum eruð og þér, eftir að hafa heyrt orð sannleikans, fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar og tekið trú á hann og verið merktir innsigli heilags anda, sem yður var fyrirheitið.

-14- Hann er pantur arfleifðar vorrar, að vér verðum endurleystir Guði til eignar, dýrð hans til vegsemdar.