Sálmur 96

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -1- Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd!-2- Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. -3- Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.-4- Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar.-5- Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.-6- Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-7- Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald.-8- Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans,-9- fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd!-10- Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-11- Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er,-12- foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,-13- fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni. 

Leitaðu ef þú ert, kátur, hreykinn

í Sálma

19 96