Sálmar Davíðs Konungs

     

 

Sálm 37

 

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-1- Davíðssálmur. Ver eigi of bráður vegna illvirkjanna, öfunda eigi þá er ranglæti fremja,-2- því að þeir fölna skjótt sem grasið, visna sem grænar jurtir.-3- Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni,

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-4- þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það sem hjarta þitt girnist.-5- Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.-6- Hann mun láta réttlæti þitt renna upp sem ljós og rétt þinn sem hábjartan dag.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-7- Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann. Ver eigi of bráður vegna þeirra er vel gengur, vegna þess manns er svik fremur.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-8- Lát af reiði og slepp heiftinni, ver eigi of bráður, það leiðir til ills eins.-9- Illvirkjarnir verða afmáðir, en þeir er vona á Drottin, fá landið til eignar.-10- Innan stundar eru engir guðlausir til framar, þegar þú gefur gætur að stað þeirra, eru þeir horfnir.-11- En hinir hógværu fá landið til eignar, gleðjast yfir ríkulegri gæfu.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-12- Óguðlegur maður býr yfir illu gegn réttlátum, nístir tönnum gegn honum.-13- Drottinn hlær að honum, því að hann sér að dagur hans kemur.-14- Óguðlegir bregða sverðinu og benda boga sína til þess að fella hinn hrjáða og snauða, til þess að brytja niður hina ráðvöndu.-15- En sverð þeirra lendir í þeirra eigin hjörtum, og bogar þeirra munu brotnir verða.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-16- Betri er lítil eign réttláts manns en auðlegð margra illgjarnra,-17- því að armleggur illgjarnra verður brotinn, en réttláta styður Drottinn.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-18- Drottinn þekkir daga ráðvandra, og arfleifð þeirra varir að eilífu.

-19- Á vondum tímum verða þeir eigi til skammar, á hallæristímum hljóta þeir saðning.-20- En óguðlegir farast, og óvinir Drottins eru sem skraut vallarins: þeir hverfa sem reykur hverfa þeir.-21- Guðlaus maður tekur lán og borgar eigi, en hinn réttláti er mildur og örlátur.-22- Því að þeir sem Drottinn blessar, fá landið til eignar, en hinum bannfærðu verður útrýmt.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-23- Frá Drottni kemur skrefum mannsins festa, þegar hann hefir þóknun á breytni hans.-24- Þótt hann falli, þá liggur hann ekki flatur, því að Drottinn heldur í hönd hans.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-25- Ungur var ég og gamall er ég orðinn, en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn né niðja hans biðja sér matar.-26- Ætíð er hann mildur og lánar, og niðjar hans verða öðrum til blessunar.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-27- Forðastu illt og gjörðu gott, þá munt þú búa kyrr um aldur,-28- því að Drottinn hefir mætur á réttlæti og yfirgefur ekki sína trúuðu. Þeir verða eilíflega varðveittir, en niðjar óguðlegra upprætast.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-29- Hinir réttlátu fá landið til eignar og búa í því um aldur.-30- Munnur réttláts manns mælir speki og tunga hans talar það sem rétt er.-31- Lögmál Guðs hans er í hjarta hans, eigi skriðnar honum fótur.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-32- Hinn guðlausi skimar eftir hinum réttláta og situr um að drepa hann,-33- en Drottinn ofurselur hann honum ekki og lætur hann ekki ganga sekan frá dómi.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.34- Vona á Drottin og gef gætur að vegi hans, þá mun hann hefja þig upp, að þú erfir landið, og þú skalt horfa á, þegar illvirkjum verður útrýmt.-35- Ég sá hinn óguðlega í ofstopa sínum og þenja sig út sem grænt tré á gróðrarstöðvum sínum,-36- og ég gekk fram hjá, og sjá, hann var þar ekki framar, ég leitaði hans, en hann fannst ekki.-37- Gef gætur að hinum ráðvanda og lít á hinn hreinskilna, því að friðsamir menn eiga framtíð fyrir höndum,-38- en afbrotamönnum verður útrýmt öllum samt, framtíðarvon óguðlegra bregst.

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.-39- Hjálp réttlátra kemur frá Drottni, hann er hæli þeirra á neyðartímum.-40- Drottinn liðsinnir þeim og bjargar þeim, bjargar þeim undan hinum óguðlega og hjálpar þeim, af því að þeir leituðu hælis hjá honum.