Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt, sem varir,

Jóhannesarguðspjall 17

 

-19- Ég helga mig fyrir þá, svo að þeir séu einnig helgaðir í sannleika.

 

-20- Ég bið ekki einungis fyrir þessum, heldur og fyrir þeim, sem á mig trúa fyrir orð þeirra,

Látum orðin í Jóhannesarguðspjall 16:21. lýsa okkur veginn

 

-21- að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur, til þess að heimurinn trúi, að þú hefur sent mig.

 

-22- Og ég hef gefið þeim þá dýrð, sem þú gafst mér, svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt,

 

-23- ég í þeim og þú í mér, svo að þeir verði fullkomlega eitt, til þess að heimurinn viti, að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.

Sjáum meira af vitnisburðinum

Annan grundvöll en þann sem lagður er getur engin lagt