Vegstikur 3. dags mánaðarins



Texti: Opinberunarbókin 1:4-5

Náð sé með yður ..
frá Jesú Kristi, ..

Hann elskar oss
og leysti oss frá syndum vorum
 með blóði sínu.

Texti: Ljóðaljóðin 8:6-7
  Því að elskan er sterk eins og dauðinn,
 Mikið vatn getur ekki slökkt elskuna ...

Texti: Jóhannesarguðspjall 15:13-13
 Enginn á meiri kærleik en þann
að leggja líf sitt í sölurnar
fyrir vini sína.

Texti: 1. Pétursbréf 2:24-24
Hann bar sjálfur syndir vorar
 á líkama sínum upp á tréð,
til þess að vér skyldum deyja frá syndunum
og lifa réttlætinu.
Fyrir hans benjar eruð vér læknaðir.

Texti:  Efesusbréf 1:7-7
 Í honum, fyrir hans blóð
eigum vér endurlausnina og
fyrirgefningu afbrota vorra.
Svo auðug er náð hans,
sem hann gaf oss ríkulega ...

Texti:  1. Korintubréf 6:11-11
 Þér létuð laugast,
þér eruð helgaðir,
þér eruð réttlættir
fyrir nafn Drottins Jesú Krists
.. fyrir anda vors Guðs.

Texti:  1. Pétursbréf 2:9-9
 Þér eruð útvalin kynslóð,
konunglegt prestafélag,
heilög þjóð,
eignarlýður,
til þess að þér skuluð
víðfrægja dáðir hans,
sem kallaði yður
frá myrkrinu
til síns undursamlega ljóss.

Texti:  Rómverjabréfið 12:1-1
Því brýni ég yður,
bræður, að þér,
vegna miskunnar Guðs,
bjóðið fram sjálfa yður
að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn.
Það er sönn og rétt guðsdýrkun
af yðar hendi.